Job 11

1Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði: 2Á ekki að svara orðagjálfrinu, og á málskrafsmaðurinn að hafa rétt fyrir sér? 3Ættu stóryrði þín að koma mönnum til að þegja, og ættir þú að spotta og enginn sneypa þig, 4þar sem þú segir: ,,Kenning mín er rétt, og ég er hreinn í augum Guðs``? 5En _ ó að Guð vildi tala og ljúka upp vörum sínum í móti þér 6og kunngjöra þér leyndardóma spekinnar, að í þeim felast margföld hyggindi, þá mundir þú kannast við, að Guð hegnir ekki til fulls misgjörð þinni. 7Getur þú náð til botns í Guði eða komist til ystu takmarka hins Almáttka? 8Himinhá er speki hans _ hvað fær þú gjört? dýpri en undirheimar _ hvað fær þú vitað? 9Hún er lengri en jörðin að víðáttu og breiðari en hafið. 10Ef hann ryðst fram og hneppir í varðhald og stefnir dómþing _ hver aftrar honum? 11Því að hann þekkir varmennin og sér ranglætið, þótt hann sé ekki að veita því athygli. 12Verður óvitur maður hygginn? og fæðist skógarösnu-folald sem maður? 13Ef þú undirbýr hjarta þitt og breiðir út lófa þína til hans, 14_ ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana, og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum _ 15já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast. 16Já, þá munt þú gleyma mæðu þinni, þú munt minnast hennar sem vatns, er runnið er fram hjá. 17Og lífið mun renna upp bjartara en hádegið, þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn. 18Og þú munt vera öruggur, því að enn er von, og skyggnist þú um, getur þú lagst óhultur til hvíldar. 19Og þú hvílist, og enginn hræðir þig, og margir munu reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér. 20En augu hinna óguðlegu daprast, fyrir þá er fokið í öll skjól, og þeirra eina von er að gefa upp andann.
Copyright information for Icelandic